Síða 1 af 2

Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Þri 03. Jún 2014 23:37
af Sultukrukka
x

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Þri 03. Jún 2014 23:43
af GuðjónR
Aðeins brot af mínu gagnamagni er erlent:
Technicolor TG589vn v2

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Þri 03. Jún 2014 23:50
af Gúrú
Segðu mér hvað þessi router heitir, ætti ekki að vera erfitt að finna út hvort hann er með áreiðanlegar tölur í þessum reitum.

Finnst einnig eins og að þú gleymir að innlent niðurhal um RIX er meðtalið í þessum tölum, og verður ekki meðtalið í gagnanotkuninni þinni.

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Þri 03. Jún 2014 23:58
af Sultukrukka
Gúrú skrifaði:Segðu mér hvað þessi router heitir, ætti ekki að vera erfitt að finna út hvort hann er með áreiðanlegar tölur í þessum reitum.

Finnst einnig eins og að þú gleymir að innlent niðurhal um RIX er meðtalið í þessum tölum, og verður ekki meðtalið í gagnanotkuninni þinni.



Er ekki viss hvort að þú sért að tala við mig eða Guðjón...þannig að ég svara bara

Nenni ekki að fara fram og kíkja hvaða router þetta er en Technicolor TG589vn v2 er það sem ég fæ upp í interfaceinu.

Ég var með í kringum 37Gb total í erlendu í maí.

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 00:38
af Gúrú
IceDeV skrifaði:Nenni ekki að fara fram og kíkja hvaða router þetta er en Technicolor TG589vn v2 er það sem ég fæ upp í interfaceinu.


Það er einmitt nákvæmasta svarið. Þessar tölur eiga að vera áreiðanlegar.

Þetta er allt frekar eðlilegt hjá þér bara. Þetta er meðalbandvíddsnotkun upp á 0.25MB/s (4Mb/s)

Miðað við áætlaðar breytingar á hvernig gagnamagn verður talið mun ég vera fucked innan við 2 vikur af netnotkun.


Kannski, láttu núverandi notkunina þína inn í þessa jöfnu sem miðar við það að þú down- og uploadar í sama hlutfalli erlent/íslenskt.

Erlent gagnamagn notað hjá þér/mánuð núna = x

x + x*(36.24/145.8)

Ef þú værir fucked á <15 dögum eftir breytingarnar ættirðu að vera fucked á <19 dögum í núverandi ástandi.


Breytt: Vissi ekki að þeir ætluðu í alvörunni að mæla RIX umferð.

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 01:53
af rapport
Mynd
Fyrir 19 daga og 7klst.

Þar af var ég 2 á Akureyri og 3-4 á Flúðum og búinn að vera lítið að horfa á þætti á kvöldin, en eitthvað.

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 02:43
af Viktor
Hér er þetta hjá mér, uptime 32 klst., niðurhal á þessu tímabili líklega um 5 GB.

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 07:55
af jericho
IceDeV skrifaði:Ákvað að stofna þennan þráð til að fá smjörþefinn af gagnanotkun hjá viðskiptavinum símans.


Ég efast um að Vaktarmeðlimir endurspegli "hinn almenna notenda" og þessi könnun gæti gefið virkilega bjagaða mynd af gagnanotkun viðskiptavina Símans. En þetta er samt frábært framtak og ég er ekki að skjóta þetta niður hjá þér, heldur vildi ég bara benda á þetta. Það væri nefninlega mjööög áhugavert að vita hver sé almenn gagnamagnsnotkun hjá viðskiptavinum Símans.

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 08:13
af Sultukrukka
Tjah, bjöguð eða ekki bjöguð. Þetta mun líklegast ekki endurspegla meginþorra áskrifenda en þetta mun sýna hverjir fara hvað verst út úr þessum málum.

Miðað við mína netnotkun þá eru þetta stökkbreyttar tölur og ef ég skipti ekki um ISP þá mun ég neyðast til að auka gagnamagn mitt.

Þykir núverandi kerfi alveg nógu ömurlegt og ekki er hið nýja betra.

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 09:10
af Moldvarpan
Mynd

Þetta er eftir 4 daga hjá mér....


Ég nota netið aðallega til afþreyingar, er ekkert að taka backup og þess háttar.

Plex, Netflix, Hulu. Torrent, youtube, comedy central. Svo fyrir utan það þegar gestir koma, þá er WiFi-ið opið fyrir þá, og oft verið að skoða ýmislegt.

Ég hef verið með stærsta eða næst stæðsta pakkann hjá þeim í gegnum tíðina, minnka við mig á sumrin í næst stæðsta pakkann. Og það erlenda gagnamagn hefur dugað mér vel.


Ég get ekki séð annað en að reikningurinn myndi hækka all verulega hjá mér.

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 11:49
af rapport
Þegar ég skoða söguna hjá mér á þjónustuvefnum þá er ég stundum að nota allt niður í 10% af 200Gb erlenda gagnamagninu, en vil samt borga þetta því að ég gæti þurft að nota þetta án fyrirvara...

600Gb innanlands er UL og DL er hugsanlega miklu hættulegri þröskuldur og það pirrar mig mikið.

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 12:14
af urban
Gúrú skrifaði:Segðu mér hvað þessi router heitir, ætti ekki að vera erfitt að finna út hvort hann er með áreiðanlegar tölur í þessum reitum.

Finnst einnig eins og að þú gleymir að innlent niðurhal um RIX er meðtalið í þessum tölum, og verður ekki meðtalið í gagnanotkuninni þinni.


Afhverju segiru að það verði ekki meðtalið ?

þetta eru nefnilega akkurat tölurnar sem að eru eitthvað nokkurn vegin að marka, þar sem að þeir ætla sér jú að mæla allt, hvort sem að það er erlendis frá eða ekki

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 16:37
af Sultukrukka
x

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 16:39
af GuðjónR
IceDeV skrifaði:Hvernig væri að fá meira af stats og minna af röfli?

Það er alveg sér umræðuþráður sérstaklega ætlaður til þess í fullu blasti

Væri fróðlegt að sjá til dæmis 4-7 daga logg yfir gagnanotkun hjá robakri.

Sammála, skal hreinsa þráðinn :)
Done!

Stay on topic!

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 17:26
af Tiger
Ég er semsagt einn af þessum 2%. Reyndar er þetta í annað sinn á mörgum árum sem ég klára 200GB erlent niðurhal, var að sækja efni fyrir son minn og gleymdi mér smá.

Screen Shot 2014-06-04 at 17.12.54.png
Screen Shot 2014-06-04 at 17.12.54.png (32.29 KiB) Skoðað 3297 sinnum

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 17:59
af GuðjónR
Tiger skrifaði:Ég er semsagt einn af þessum 2%. Reyndar er þetta í annað sinn á mörgum árum sem ég klára 200GB erlent niðurhal, var að sækja efni fyrir son minn og gleymdi mér smá.

Screen Shot 2014-06-04 at 17.12.54.png

Hver voru hluföllin hjá þér? 200 erlent og 800 innlennt?
Það hefði orðið feitur reikningur hjá þér ef nýja kerfið væri komið á.

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 18:10
af DoRi-
Mynd

Ég held að ég sé klárlega í 2%.

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 18:13
af Jon1
hvar get ég séð þetta á trendnet routerum ?

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 18:18
af slapi
Mér sýnist ég hefði verið fokked en sem betur fer flyt ég af þessu skeri áður en ágúst rennur í garð
Af þessu eru slétt 200gb erlent

Mynd

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 19:34
af GullMoli
Mynd
Þetta er yfir síðustu 80 daga. Samtals um 1182.6GB Upp og Niður, deilt niður á 2.6 mánuði gerir um 455GB á mánuði.

Erum 3-4 að nota netið hérna, ekkert mikið verið að niðurhala. Netflix eitthvað smá í gangi en mig minnir að það sé ekki í fullHD.

Er reyndar ekki hjá Símanum, heldur Hringdu :lol:

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 21:59
af Kristján Gerhard
Er líka hjá hringdu.

Mynd

Þetta er fyrir 53 daga. ~1.76 mánuð

DL -> ~295GB per mánuð
UL -> ~437.5GB per mánuð

Átta mig nú reyndar ekki á því afhverju DL er svona hátt fyrir tímabilið UL er hinsvegar Plex server.

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 22:08
af robakri
Því miður er ég með eitthvað gallaðan router og hef ekki haft tíma til að fá nýjan. Minn sýnir 4 gb download og 150 meg upload. Skoðaði gagnanotkun mína, 2gb erlendis. Skv þessu mjög mjög mjög ómarktæka dæmi sökum fárra mælinga er ég einn þeirra sem græða á þessu, rétt eins og ég spáði.

Steingleymdi að tilgreina uppitíma, þetta eru s.s. síðustu 2 dagar.

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 22:17
af dabbivilla
Capture.JPG
Capture.JPG (16.99 KiB) Skoðað 3077 sinnum

Nota mikið Crashplan t.d. spara ekkert við mig í notkun, 3 farsímar í mikilli notkun, 2x Ipadar og Spotify notað daglega í 5-10 tíma. Sjónvarp tekið yfir loftnet.

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Mið 04. Jún 2014 23:39
af falcon1
Hvernig get ég séð þetta hjá mér, ég er hjá Vodafone á ljósleiðara.

Re: Gagnanotkun hjá áskrifendum Símans - Létt könnun

Sent: Fim 05. Jún 2014 00:13
af Gislinn
Er hjá Vodafone en mínar tölur eru:
Last 30 Days (2014-05-06 ~ 2014-06-04):
Reception 109.39 GB
Transmission 83.81 GB
Total 193.20 GB
Last 60 Days (2014-05-05 ~ 2014-06-04):
Reception 238.52 GB
Transmission 188.53 GB
Total 427.05 GB

Er með 100 GB á mánuði á ljósleiðara og nota Netflix töluvert. Ég verð ekkert svakalega kátur ef Vodafone fer sömuleið og Síminn, þá fer ég að þurfa að fylgjast betur með backup systeminu mínu. Ég hef þó enn töluvert svigrúm ef miðað er við þreföldun á gagnamagni.