Síða 1 af 1

Hvar er ódýrasta Windows 7 á klakanum?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 14:58
af izelord
Sælir.

Eins og titillinn gefur til kynna er ég að leita mér að Windows 7. Aðeins professional og ultimate útgáfurnar koma til greina og þetta má ekki vera OEM.
Hef skoðað verðlistann hjá hinum ýmsu tölvuverslunum og fæ strax illt í veskið. Því spyr ég hvort þið hinir vitið af einhverjum sérstökum tilboðum eða verslunum þar sem hægt er að spara sér allavega annað nýrað.

Re: Hvar er ódýrasta Windows 7 á klakanum?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 15:11
af lukkuláki
Það mætti nú alveg bæta þessu á Vaktina ?
Stýrikerfi og jafnvel fleiri hugbúnaður ?

Hrikalega dýrt !

Kaupa þetta bara online, er nokkuð því til fyrirstöðu ?
http://www.microsoftstore.com/store/msstore/html/pbPage.Windows_Compare_Editions

Re: Hvar er ódýrasta Windows 7 á klakanum?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 15:42
af ManiO
Hvað ertu gamall? Þekkiru einhvern í háskóla?


Gætir prófað að fara í HÍ eða HR að kaupa Win7. Í HR er er alla vega Win7 Enterprise útgáfa á 5000 kall.

Og samkvæmt Wikipedia er Pro og Enterprise útgáfan nánast eins, http://en.wikipedia.org/wiki/Windows_7_ ... ison_chart

Re: Hvar er ódýrasta Windows 7 á klakanum?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 16:21
af gardar
Ódýrasta windows 7 á klakanum segirðu...

http://asvidgerdir.host22.com/Vidgerdir.html

:lol:

Re: Hvar er ódýrasta Windows 7 á klakanum?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 16:47
af lukkuláki
gardar skrifaði:Ódýrasta windows 7 á klakanum segirðu...

http://asvidgerdir.host22.com/Vidgerdir.html

:lol:


Þetta er sennilega ódýrast í heiminum :-"

Re: Hvar er ódýrasta Windows 7 á klakanum?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 17:07
af Tesli
Ég keypti mér Windows7 Ultimate í HR á 5.000 kr og meira að segja Office2010 pakkann á 4.500kr.
Hver nemandi má bara kaupa eitt stýrikerfi og einn office pakka samt.

Re: Hvar er ódýrasta Windows 7 á klakanum?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 17:43
af kizi86
lukkuláki skrifaði:
gardar skrifaði:Ódýrasta windows 7 á klakanum segirðu...

http://asvidgerdir.host22.com/Vidgerdir.html

:lol:


Þetta er sennilega ódýrast í heiminum :-"


líka hægt að fá þarna heimsins ódýrasta adobe photoshop cs5 extended :P 3500kr.
á heimasíðu adobe kostar upgrade (ef átt photoshop fyrir) 349$ sem gera 39.817 kr en ef kaupir full installation þá er pakkinn á 999$ eða 113.975kr

Re: Hvar er ódýrasta Windows 7 á klakanum?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 17:58
af bulldog
:money :money :money :money varla mikið löglegt við þessi forrit hjá honum :money :money :money :money

Re: Hvar er ódýrasta Windows 7 á klakanum?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 18:01
af Kristján Gerhard
laemingi skrifaði:Ég keypti mér Windows7 Ultimate í HR á 5.000 kr og meira að segja Office2010 pakkann á 4.500kr.
Hver nemandi má bara kaupa eitt stýrikerfi og einn office pakka samt.


já á hverju ári, á bæði 32 og 64 bita útgáfur af W7 sem ég keypti í HR

Re: Hvar er ódýrasta Windows 7 á klakanum?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 18:23
af berteh
Þessi skólaleyfi eru þau eitthvað takmörkuð að öðru leiti? eða háð áframhaldandi skólavist? :)

Re: Hvar er ódýrasta Windows 7 á klakanum?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 18:43
af ManiO
berteh skrifaði:Þessi skólaleyfi eru þau eitthvað takmörkuð að öðru leiti? eða háð áframhaldandi skólavist? :)



Ekki nema eftir UELA. Það er ekkert sem að heftir keyrsluna né hve lengi þú getur keyrt stýrikerfið.

Re: Hvar er ódýrasta Windows 7 á klakanum?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 18:53
af stjani11
veit einhver hvort það sé hægt að fá windows ódýrt hjá HÍ?

Re: Hvar er ódýrasta Windows 7 á klakanum?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 19:30
af Kristján Gerhard
stjani11 skrifaði:veit einhver hvort það sé hægt að fá windows ódýrt hjá HÍ?


Nei, mér skilst ekki, konan kannaði það í vetur og það var ekki í boði.

Re: Hvar er ódýrasta Windows 7 á klakanum?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 19:31
af coldcut
Sem nemandi í HÍ (veit ekki með HR) þá fáum við M$-draslið frítt. Allavegana þeir sem eru í tölvunarfræði og hugbúnaðarverkfræði.

Enda sé ég ekki af hverju í ósköpunum menn ættu að borga fyrir þetta. En það er önnur umræða...

Re: Hvar er ódýrasta Windows 7 á klakanum?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 21:11
af Hargo
coldcut skrifaði:Sem nemandi í HÍ (veit ekki með HR) þá fáum við M$-draslið frítt. Allavegana þeir sem eru í tölvunarfræði og hugbúnaðarverkfræði.

Enda sé ég ekki af hverju í ósköpunum menn ættu að borga fyrir þetta. En það er önnur umræða...


HR-ingar fá þetta líka frítt gegnum MSDN, allvega þeir sem eru í tölvunarfræði.

Re: Hvar er ódýrasta Windows 7 á klakanum?

Sent: Mán 22. Ágú 2011 16:36
af Zaphod
Ef að þú þekkir einhvern í skóla í usa sem er með email sem enda á .edu, þá geturðu fengið windows 7 professional á $29,90+skatt =3,782 kr. Að vísu digital download...

Re: Hvar er ódýrasta Windows 7 á klakanum?

Sent: Mán 22. Ágú 2011 17:00
af Cascade
Afhverju má þetta ekki vera OEM?

Er þetta ekki OEM sem maður fær hjá skólunum?


Ég er í DTU og er með aðgang að svona msdn og fæ þetta ókeipis (En það er náttla OEM, bara digital download, fæ serial númer og download)

Re: Hvar er ódýrasta Windows 7 á klakanum?

Sent: Mán 22. Ágú 2011 17:05
af AntiTrust
ManiO skrifaði:Og samkvæmt Wikipedia er Pro og Enterprise útgáfan nánast eins, http://en.wikipedia.org/wiki/Windows_7_ ... ison_chart


Það er einn stór munur þarna á milli, Pro er ekki með Bitlocker.