Heimasíðu hýsing?


Höfundur
hendrixx
Fiktari
Póstar: 86
Skráði sig: Sun 10. Maí 2009 22:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Heimasíðu hýsing?

Pósturaf hendrixx » Mið 21. Apr 2010 12:48

Nú er ég ALGJÖR nýliði þegar kemur að hýsingu á síðum og spyr því, hvar er ódýrasta hýsingin? er munur á gæðum?(þeas einhverjir hýsingaraðilar sem crasha frekar eða whatnot). hef gjörsamlega ekkert vit á þessu.

ef ég skil þetta rétt, þá er ekki nóg að kaupa bara lénið (einsog td jonsson.is), heldur þarf að borga mánaðarlega fyrir hýsingu líka. og hvernig virkar það? ég borga fyrir hýsingu og bý mér svo bara til eigin heimasíðu? og hvað ef hún fer yfir hýsingartakmarkið?(td 1gb)

afsakið n00ba spurningarnar, og nei þetta er ekki djók :)

með von um góð svör [-o<




AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6345
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: Heimasíðu hýsing?

Pósturaf AntiTrust » Mið 21. Apr 2010 13:13

Lén er bara nafn til að svara kalli. Hýsing geymir síðuna sjálfa, innihald, texta, myndir, bakgrunnskerfi etc. Þú borgar árlega fyrir lén til ISNIC (ef þú færð þér .is) og svo mánaðarlega yfirleitt fyrir hýsingu. Þú tengist síðan inn á hýsinguna í gegnum FTP og vinnur þannig á svæðinu þínu, setur upp síðu, kerfi og annað innihald. Athugaðu samt að ef þú ætlar að nota e-ð gagnagrunnskerfi að hýsingaraðilinn styðji örugglega gagnagrunninn. Ef þú ert með kerfi geturu yfirleitt bara unnið á það beint, þarft ekki að vera sífellt inn á ftp til þess.

Einfaldast væri fyrir þig að kaupa aðgang að hýsingu með preinstalled kerfi, með templates og annað til að vinna með, fyrir mann sem er algjör byrjandi er það sniðugast hugsa ég, og vinna þig svo áfram úr því, skoða kóðana, læra, breyta.




Höfundur
hendrixx
Fiktari
Póstar: 86
Skráði sig: Sun 10. Maí 2009 22:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Heimasíðu hýsing?

Pósturaf hendrixx » Mið 21. Apr 2010 13:42

þakka gott svar.

týpan af heimasíðu sem ég er að spá í er eins/svipuð og http://www.buy.is - er einhver hýsingaraðili sem þið mynduð mæla með varðandi þannig heimasíðu? (er hægt að fá þannig síðu uppsetta einsog þú talar um sem maður fiktar svo í?)



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Heimasíðu hýsing?

Pósturaf Gúrú » Mið 21. Apr 2010 14:15

hendrixx skrifaði:þakka gott svar.
týpan af heimasíðu sem ég er að spá í er eins/svipuð og http://www.buy.is - er einhver hýsingaraðili sem þið mynduð mæla með varðandi þannig heimasíðu? (er hægt að fá þannig síðu uppsetta einsog þú talar um sem maður fiktar svo í?)


Heppilegt að buy.is er akkúrat að nota template fyrir vefverslun.


Modus ponens


Höfundur
hendrixx
Fiktari
Póstar: 86
Skráði sig: Sun 10. Maí 2009 22:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Heimasíðu hýsing?

Pósturaf hendrixx » Mið 21. Apr 2010 14:20

Gúrú skrifaði:
hendrixx skrifaði:þakka gott svar.
týpan af heimasíðu sem ég er að spá í er eins/svipuð og http://www.buy.is - er einhver hýsingaraðili sem þið mynduð mæla með varðandi þannig heimasíðu? (er hægt að fá þannig síðu uppsetta einsog þú talar um sem maður fiktar svo í?)


Heppilegt að buy.is er akkúrat að nota template fyrir vefverslun.


?



Skjámynd

MatroX
Bannaður
Póstar: 3540
Skráði sig: Mið 17. Feb 2010 12:58
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Re: Heimasíðu hýsing?

Pósturaf MatroX » Mið 21. Apr 2010 14:50

mæli með justhost.com ég get reddað 20% afslætti pm me


Intel i7 13700k | Artic Freezer II 240 | Gigabyte ud4 | Ripjaws 4x8gb 3200mhz | Palit RTX 3080 GAME ROCK | Corsair 350d | 1x 1tb CARDEA ZERO | 2tb SSD| Antec HCP 1200w | 1x 27" PHILIPS 274E5QHS | 1x ASUS 27" 4k ultrawide | Corsair M95 Mús | Corsair K95 RGB MX Red Lyklaborð |

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Heimasíðu hýsing?

Pósturaf Gúrú » Mið 21. Apr 2010 14:57

hendrixx skrifaði:
Gúrú skrifaði:Heppilegt að buy.is er akkúrat að nota template fyrir vefverslun.

?


Man ekki alveg hvað það heitir, en öll vefverslunin sem buy.is notar er bara template, greiðslur, lookið og uppsetningin :)
Getur fundið nafnið á bls ca 15-40 viewtopic.php?f=9&t=26130 þessa þráðar.
Eða PMað FBG á vaktinni, eða sent mail á fbg@buy.is, hann er mjög þjónustulundur.
Davian skrifaði:mæli með justhost.com ég get reddað 20% afslætti pm me


Þegar að fólk getur 'reddað' hinum og þessum afsláttum á síðum og er affiliate og hagnast á 'sölu'(affiliationinu) þá er erfitt að taka meðmæli um gæði síðunnar alvarlega.
Bara word of advice fyrir OP. :)


Modus ponens


Höfundur
hendrixx
Fiktari
Póstar: 86
Skráði sig: Sun 10. Maí 2009 22:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Heimasíðu hýsing?

Pósturaf hendrixx » Mið 21. Apr 2010 15:07

takk fyir svörin!




bolti
has spoken...
Póstar: 175
Skráði sig: Mán 17. Nóv 2008 22:21
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Heimasíðu hýsing?

Pósturaf bolti » Mið 21. Apr 2010 15:16

Ég mæli með 1984... íslensk vefhýsing sem virkar mjög vel og virkar líka fyrir svona netverslun eins og þú ert að tala um.




Opes
FanBoy
Póstar: 793
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 12:02
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Heimasíðu hýsing?

Pósturaf Opes » Mið 21. Apr 2010 15:30

CMS sem Buy.is notar heitir PrestaShop.



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3755
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 121
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Heimasíðu hýsing?

Pósturaf Pandemic » Mið 21. Apr 2010 17:02

1984.is fær meðmæli hjá mér og þeir geta jafnvel hent upp fyrir þig scriptunni í leiðinni.




PC__
Græningi
Póstar: 40
Skráði sig: Þri 13. Apr 2010 23:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Heimasíðu hýsing?

Pósturaf PC__ » Mið 05. Maí 2010 02:20

Ef þú ert að spá í Prestashop ala Buy.is, þá þarftu að hýsa hjá aðila sem er með php og mysql stuðning.
Prestashop er frítt það er að segja kerfið sjálft, en ef þú villt taka við greiðslum með kreditkortum þá þarftu að gera samning við valitor/korta eða eitthva í þá áttina.
En svo er greiðslugáttin ekki frí þú þarft að kaupa hana, kannski fgb hjá buy.is væri til í að selja þér sína en það verður aldrei ódýrt.
Og svo til að taka af allan vafa þá er prestashop ekki CMS (content management system) heldur vefverslun, og kannski alls ekki sú besta til þess brúks.
Ekki vista þetta erlendis! Það endar bara með tárum nema þú veljir einhvern stóran og rándýran hýsingaraðila, það er nóg af alls konar hýsingaraðilum á Íslandi :D



Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2828
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 209
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: Heimasíðu hýsing?

Pósturaf CendenZ » Sun 06. Jún 2010 22:34

PC__ skrifaði:Ef þú ert að spá í Prestashop ala Buy.is, þá þarftu að hýsa hjá aðila sem er með php og mysql stuðning.
Prestashop er frítt það er að segja kerfið sjálft, en ef þú villt taka við greiðslum með kreditkortum þá þarftu að gera samning við valitor/korta eða eitthva í þá áttina.
En svo er greiðslugáttin ekki frí þú þarft að kaupa hana, kannski fgb hjá buy.is væri til í að selja þér sína en það verður aldrei ódýrt.
Og svo til að taka af allan vafa þá er prestashop ekki CMS (content management system) heldur vefverslun, og kannski alls ekki sú besta til þess brúks.
Ekki vista þetta erlendis! Það endar bara með tárum nema þú veljir einhvern stóran og rándýran hýsingaraðila, það er nóg af alls konar hýsingaraðilum á Íslandi :D



Hvaða vefverslun myndiru mæla með ?



Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Reputation: 12
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Heimasíðu hýsing?

Pósturaf gardar » Mán 07. Jún 2010 23:07

PC__ skrifaði:Ef þú ert að spá í Prestashop ala Buy.is, þá þarftu að hýsa hjá aðila sem er með php og mysql stuðning.
Prestashop er frítt það er að segja kerfið sjálft, en ef þú villt taka við greiðslum með kreditkortum þá þarftu að gera samning við valitor/korta eða eitthva í þá áttina.
En svo er greiðslugáttin ekki frí þú þarft að kaupa hana, kannski fgb hjá buy.is væri til í að selja þér sína en það verður aldrei ódýrt.
Og svo til að taka af allan vafa þá er prestashop ekki CMS (content management system) heldur vefverslun, og kannski alls ekki sú besta til þess brúks.
Ekki vista þetta erlendis! Það endar bara með tárum nema þú veljir einhvern stóran og rándýran hýsingaraðila, það er nóg af alls konar hýsingaraðilum á Íslandi :D




huh?




Páll
/dev/null
Póstar: 1426
Skráði sig: Mán 28. Apr 2008 17:32
Reputation: 0
Staðsetning: Undir töfra regnboganum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Heimasíðu hýsing?

Pósturaf Páll » Þri 08. Jún 2010 00:11

http://24shells.net ódýrir, gott support og næstum 100% uptime