Verðlöggur á tölvuna mína

ATH: Einungis er leyfð sala á tölvum og tölvutengdum búnaði.
VARÚÐ: Verðlöggur eru leyfðar með þeim takmörkunum að ýtrustu kurteysi er krafist af þeim.

Höfundur
capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Verðlöggur á tölvuna mína

Pósturaf capteinninn » Fös 27. Sep 2013 01:22

Er að skoða að uppfæra tölvuna en eftir að hafa verið að skoða mig um er ég orðinn svoldið æstur í að kaupa bara alveg nýja tölvu.

Er að spá hvað ég gæti selt núverandi tölvuna mína á til að ná upp í nýja tölvu sem ég mun svo kaupa.
Veit ekki hvort þetta er endilega á réttum stað og ég bið stjórnendur að skutla mér þangað ef þetta er vitlaust eða láta mig vita og ég færi það sjálfur.

Speccy gaf mér þessa specca. Í þetta vantar reyndar DVD drif en það er ótengt því ég keypti nýjan harðan disk og átti ekki nóg af köplum til að hafa bæði tengt á sama tíma og ég hef ekki haft þörf á DVD drifi eiginlega alveg frá því að ég keypti tölvuna.

Sýnist kassinn vera EZ-cool H-60B H2 ATX sem ég fékk með tölvunni þegar ég keypti hana í Kísildal á sínum tíma.
Ég myndi sennilega taka út Sata diskana fyrir nýju tölvuna en halda eftir SSD disknum í sölunni, myndi hugsanlega kaupa annan stóran harðan disk (1 eða 2 tb) og setja í staðinn þannig að fólk gæti verið með SSD fyrir stýrikerfi og stærri diska fyrir allt annað (eins og ég er með uppsett núna)

Kóði: Velja allt

Operating System
   Windows 7 Ultimate 64-bit

CPU
   Intel Core i3 530 @ 2.93GHz   53 °C
   Clarkdale 32nm Technology

RAM
   4,00GB Dual-Channel DDR3 @ 669MHz (9-9-9-24)

Motherboard
   ASRock H55M Pro (CPUSocket)   34 °C

Graphics
   W2361 (1920x1080@59Hz)
   768MB NVIDIA GeForce GTX 460 (NVIDIA)   40 °C

Hard Drives
   1863GB Seagate ST2000DM001-1CH164 ATA Device (SATA)   32 °C
   932GB Seagate ST31000528AS ATA Device (SATA)   33 °C
   56GB FM-25S2S-60GBP2 ATA Device (SSD)


En allavega hvað mundu sérfræðingar vaktarinnar gefa þessari í verðmat?



Skjámynd

MrSparklez
Tölvutryllir
Póstar: 637
Skráði sig: Lau 04. Maí 2013 16:01
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Verðlöggur á tölvuna mína

Pósturaf MrSparklez » Fös 27. Sep 2013 12:53

Er enginn séni í þessu en myndi giska 30-50 þús :)




Bioeight
Gúrú
Póstar: 526
Skráði sig: Þri 31. Mar 2009 22:41
Reputation: 6
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Verðlöggur á tölvuna mína

Pósturaf Bioeight » Fös 27. Sep 2013 14:23

Linkur um svipaða vél frá því í fyrra: http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=9&t=46384

Miðað við þína vél og ári seinna myndi ég setja:
Kassi 7 þúsund
Aflgjafi 5 þúsund
Móðurborð 5-8 þúsund
Örgjörvi 7-8 þúsund
Kæling 2 þúsund
Minni 4-5 þúsund
Skjákort 10-12 þúsund
SSD diskur 7-8 þúsund
Geisladrif 2 þúsund

samtals: 49-57 þúsund


Corsair Carbide 400Q| MSI Nvidia 2080| AMD R9 5900X| Gigabyte X470 Aorus Gaming 5| EVGA SuperNOVA 750 G3


Höfundur
capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Verðlöggur á tölvuna mína

Pósturaf capteinninn » Fös 27. Sep 2013 19:47

Olræt takk fyrir svörin, skoða þetta þegar ég tek ákvörðun um hvað ég geri