Síða 1 af 1

[TS] Turbo-tölva!

Sent: Þri 29. Sep 2009 18:29
af Opes
Sælir.
Er að selja tölvuna mína. Ástæða til sölu er að ég ætla að fá mér iMac.

Íhlutirnir eru ekki endilega ódýrastir í þeim verslunum sem ég tengla í. Tenglarnir eru í flestum tilvikum þar sem ég keypti íhlutina.

Mynd

Tæknilegar upplýsingar:

Kassi: Antec P182 (keyptur hjá Tölvutek 21.07.09), með auka viftu (Antec Tricool 120mm)
Móðurborð: Gigabyte GA-EP45-DS5 (keypt hjá Tölvutek 19.12.08, kostaði 24.990 kr, er ekki til sölu lengur)
Örgjörvi: Intel Core2Quad Q6600 2.4GHz, get overclockað í 3.0 GHz, eða 3.2 GHz stable fyrir kaupanda (keypt hjá Tæknibæ 03.01.09)
Örgjörvakæling: Thermalright Ultra Extreme (keypt hjá Kísildal, 29.12.08)
Vinnsluminni: 2x2gb Mushkin 1066mhz (keypt hjá Tölvutækni, 05.08.09)
Skjákort: Gigabyte GeForce 8800 Ultra (keypt notað, er rétt rúmlega tveggja ára, kostaði um 45.000 kr. nýtt)
Skjákortskæling: HR-03+ (keypt notuð, hérna er tengill á samskonar).
Harður diskur: 1TB Samsung (keyptur hjá computer.is, 19.12.08)
Þráðlaust netkort: DWA-547, 802.11n (keypt hjá Elko fyrir svona 5 mánuðum, ábyrgð á kt. minni)
Aflgjafi: 650w Antec Neopower modular (keyptur hjá Tölvutækni, 22.07.09)
Geisladrif: Samsung DVD skrifari (keyptur hjá att.is fyrir tveim vikum, hefur aldrei verið notað, á eftir að setja í, mun gera það fyrir kaupanda).

Nótur fyrir öllu fylgja (nema þráðlausa netkortinu, það er skráð á kt.), sem gildir sem ábyrgðarskírteini. Ábyrgð gildir í tvö ár frá ofangreindum kaupdegi.

Ég setti saman tölvuna. "Cable Management"-ið er rosalegt í þessum kassa, og það varla sést í kapal! Loftflæðið er virkilega gott! Skal taka mynd og senda inn fljótlega.
Heyrist mjög lítið í tölvunni, þar sem það er engin vifta á örgjörvanum, né skjákortinu, bara rosalega stórar kæliplötur, og gott loftfæði í kassanum. Skjákortið, og örgjörvinn eru að keyra á mjög góðu hitastigi. Tölvan hefur verið rykhreinsuð, og rykfilterarnir alltaf hreinsaðir reglulega (á um tveggja vikna fresti). Það er varla að finna ryk í þessum kassa.

Mun ekki selja í pörtum.

Er að keyra Mac OS X 10.6.1 á henni, og Windows 7 - 7600 (64bita). Allt virkar fínt í Mac OS X fyrir utan Mic in (það er bara stýrikerfið, ekki vélbúnaðurinn). Fyrir áhugasama þá er ég að nota Chameleon 2.0 RC3, DSDT patch (skjákort með EFI strings), og nokkra kext. Bootloaderinn er uppsettur á EFI disksneiðina.
S.s. hún loadar öll kext af sér disksneið, svo kerfið er sett upp "retail".
Get afhent hana með nánast hvaða stýrikerfi sem er, en kaupandi þarf að eiga leyfið.
Get afhent hana með Mac OS X 10.6.1 uppsettu, en kaupandi þarf þá að verða sér út um Snow Leopard leyfi.

Allir kassar og fleira fylgir með.

Ný kostar þessi tölva um 215.000 kr (miðaði skjákortið+kælinguna sem 30.000 kr).

Óska eftir tilboðum/fyrirspurnum á siggi[hjá]siggifly.net, eða á þennan þráð, EKKI Í PM!
Verðhugmynd: 150.000 kr
.
Takk fyrir.

-Siggi.

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Mið 30. Sep 2009 16:19
af Máni Snær
Þú vilt ekki skipti á viku gamalli IBM Thinkpad SL400c ?

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Mið 30. Sep 2009 16:21
af Opes
Skoða skipti á nýlegum Makka, engu öðru.

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Fim 08. Okt 2009 22:25
af Opes
Myndir:

Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd

Sér ekkert á kassanum.

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Fim 08. Okt 2009 23:46
af schaferman
Sést heldur ekkert á þessum handónýtu myndum,, og ekki sést túrbínan heldur

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Fim 08. Okt 2009 23:55
af SteiniP
Afhverju eru minnin ekki í dual channel [-X

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Fös 09. Okt 2009 08:53
af Glazier
SteiniP skrifaði:Afhverju eru minnin ekki í dual channel [-X

haha var akkurat að spá í því :P

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Fös 09. Okt 2009 12:35
af vesley
schaferman skrifaði:Sést heldur ekkert á þessum handónýtu myndum,, og ekki sést túrbínan heldur

´


hvað meinaru með túrbínan . og það sést nú alveg nóg á þessum myndun ;) sérð kælinguna cable management og allt nauðsynlegt. ekki eins og maður þurfi að sjá innan í tölvu við kaup .. útlitið bætir ekki performance. eina sem væri gott að vita er bara með ryk og cable management.

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Fös 09. Okt 2009 12:51
af Sphinx
vesley skrifaði:
schaferman skrifaði:Sést heldur ekkert á þessum handónýtu myndum,, og ekki sést túrbínan heldur

´


hvað meinaru með túrbínan . og það sést nú alveg nóg á þessum myndun ;) sérð kælinguna cable management og allt nauðsynlegt. ekki eins og maður þurfi að sjá innan í tölvu við kaup .. útlitið bætir ekki performance. eina sem væri gott að vita er bara með ryk og cable management.



það sem hann meinar með túrbínan er að þú seigir túrbo tölva þá er hann að meina að túrbínan sest ekki a myndum

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Lau 10. Okt 2009 14:29
af nils
Vááá´´a´hvað ég myndi aldrei borga 150k fyrir þettta hahahhaha

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Lau 10. Okt 2009 14:47
af Viktor
nils skrifaði:Vááá´´a´hvað ég myndi aldrei borga 150k fyrir þettta hahahhaha

Held að fólki hérna sé slétt sama...

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Lau 10. Okt 2009 15:07
af nils
Allavega ekki þú

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Lau 10. Okt 2009 15:30
af Gúrú
Það er enginn að banna þér að fylgja reglunum sko.... 4 gr. og 1 gr. eru LÍKA reglur ólíkt því sem að fólk virðist halda.

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Sun 11. Okt 2009 01:44
af Opes
Það má endilega eyða síðustu fjórum innleggjunum, sem og þessu.

Nils, ef þú hefur ekki áhuga, ekki vera þá að skipta þér af. Þetta er peningurinn sem ég vill fá fyrir tölvuna, sama hvað þú vælir mikið. Finnst 150þ bara nokkuð sanngjarnt :).

Og já, varðandi dual channel, þá var ég bara að prófa eitt, eru vanalega í dual channel.

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Sun 11. Okt 2009 02:21
af Glazier
Getur fengið betri tölvu en þetta fyrir 150.000 kr. (nema þú sért að láta einhvern skjá fara með þessu)
Sjáðu dæmi: (kostar reyndar 6.900 kr. meira en þarna er maður með tölvuna splunku nýja úr búð og með 2 ára ábyrgð (geri ráð fyrir að tölvan þín sé ekki keypt sama dag og þú gerðir þessa auglýsingu svo það er styttri ábyrgð á þessari sem þú ert með.)
Kisildalur.is - Karfan mín skrifaði:

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Sun 11. Okt 2009 02:35
af Opes
FFS, ég var ekki að óska eftir verðlöggum, né uppsetningu á nýrri tölvu. Er með tölvuna mína til sölu, ef þið hafið ekki áhuga, ekki kaupa. Þetta er eins og að labba inn í Hagkaup, og fara að væla útaf því að DVD spilari kostar svo mikið...

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Sun 11. Okt 2009 02:47
af Glazier
ATH: Einungis er leyfð sala á tölvum og tölvutengdum búnaði.
VARÚÐ: Verðlöggur - farðu varlega í verðsetningu.
Við erum bara að koma í veg fyrir að þú rænir einhvern ;)

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Sun 11. Okt 2009 03:03
af sakaxxx
sammála glazier það eru fáir núbbar hér settu þetta á http://www.er.is þar ætti þetta að seljast :wink:

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Sun 11. Okt 2009 12:37
af chaplin
Bara svo þú vitir það er varað við verðlöggu. Og ef þú vilt koma með speisuð dæmi þá er eitt hér. Þótt að skjákortið þitt kostaði um 45.000 kr fyrir tveimur árum, þá er það núna metið á 5-10k. Ælta nú samt ekkert að eyðileggja fyrir þér auglýsinguna, en þetta er vel yfirverðsett, svipuð tölva er að fara á sirka 80-100k.

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Sun 11. Okt 2009 13:16
af vesley
daanielin skrifaði:Bara svo þú vitir það er varað við verðlöggu. Og ef þú vilt koma með speisuð dæmi þá er eitt hér. Þótt að skjákortið þitt kostaði um 45.000 kr fyrir tveimur árum, þá er það núna metið á 5-10k. Ælta nú samt ekkert að eyðileggja fyrir þér auglýsinguna, en þetta er vel yfirverðsett, svipuð tölva er að fara á sirka 80-100k.


8800 ultra væri nú meira svona 15 þús kall. þessi kort voru alveg svakaleg og virka enn vel . en jú það væri ásættanlegt um 80-100k fyrir tölvuna

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Sun 11. Okt 2009 16:00
af chaplin
vesley skrifaði:
daanielin skrifaði:Bara svo þú vitir það er varað við verðlöggu. Og ef þú vilt koma með speisuð dæmi þá er eitt hér. Þótt að skjákortið þitt kostaði um 45.000 kr fyrir tveimur árum, þá er það núna metið á 5-10k. Ælta nú samt ekkert að eyðileggja fyrir þér auglýsinguna, en þetta er vel yfirverðsett, svipuð tölva er að fara á sirka 80-100k.


8800 ultra væri nú meira svona 15 þús kall. þessi kort voru alveg svakaleg og virka enn vel . en jú það væri ásættanlegt um 80-100k fyrir tölvuna

Reeyndar, var að skoða smá review og kom það mjög vel út! En held að 15þkr kort í dag taki þetta alveg.

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Sun 11. Okt 2009 16:29
af Viktor
Í sambandi við þessar myndir af tölvunni þá skil ég ekki afhverju það er verið að teygja upplausnina svona mikið þegar myndgæðin eru svona hræðileg, er þetta til þess að geta auglýst myndavélina sem 2 Mega Pixel(sölutrikk?). Geturðu minnkað þær?

Re: [TS] Turbo-tölva!

Sent: Sun 11. Okt 2009 16:38
af Taxi
Ég mundi meta þessa vél á 100.þús í dag, þetta er dýr kassi, góður aflgjafi, quadcore örri sem yfirklukkast vel og móðurborð sem yfirklukkar þennann örgjörva í 3,2 - 3,6GHz með þessari rándýru örgjörfakælingukælingu, fínasta skjákort með frábærri kælingu á og minnin og harði diskurinn eru með því nýrra í dag. :8)

Gangi þér vel að selja tölvuna, en ef þú vilt 150.þús þá ættir þú að reyna á öðrum síðum en vaktin.is.